Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Gagnleg Ráð - KitchenAid ARTISAN 5KFPM776 Bedienungsanleitung Und Rezepte

Vorschau ausblenden Andere Handbücher für ARTISAN 5KFPM776:
Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 89
1. Til að forðast skemmdir á blaðinu eða
mótornum, skal ekki vinna matvæli sem
eru svo hörð eða gegnfrosin að ekki sé
hægt að stinga í þau með beittum hníf.
Ef biti af hörðum matvælum, svo sem
gulrót, festist á blaðinu skal stöðva
vélina og taka blaðið úr. Fjarlægið
matvælin varlega af blaðinu.
2. Þegar verið er að skera og troða
matvælum ofan í sérlega víða (ultra
wide mouth) ílagsopið, skal ekki fara
upp fyrir merkið um hámarksfyllingu.
Þannig getur troðarinn virkjað
öryggiskerfið og vélin farið í gang.
3. Yfirfyllið ekki vinnsluskálina eða litlu
skálina. Þegar unnar eru þunnar
blöndur má fylla vinnsluskálina að
½ eða ²⁄ ³ . Þegar unnar eru þykkari
blöndur má fylla vinnsluskálina að ¾
. Vökva má fylla upp að merkinu um
hámarksvökvamagn, eins og lýst er á
bls. 12. Þegar hakkað er ætti ekki að
fylla vinnsluskálina meira en að ¹⁄ ³ til ½
. Notið litlu skálina fyrir allt að 240 ml
(1 bolla) af vökva eða 65 gr (½ bolla)
af þurrefnum.
4. Komið sneiðdiskunum þannig fyrir
að skurðhliðin sé aðeins til hægri við
ílagsopið. Þannig nær blaðið að snúast
heilan hring áður en það kemst í
snertingu við matvælin.
5. Til að nýta hraða vélarinnar skal setja
matvæli sem á að hakka niður um litla
ílagsopið á meðan vélin er í gangi.
6. Mismunandi matvæli þurfa
mismunandi þrýsting til að ná sem
bestum árangri við rif og sneiðingu.
Almenna reglan er sú að nota léttan
þrýsting við mjúk, viðkvæm matvæli
(jarðarber, tómata o.fl.), miðlungs
þrýsting fyrir miðlungs þétt matvæli
(kúrbít, kartöflur o.fl.) og þéttan
þrýsting fyrir hörð matvæli (gulrætur,
epli, harðan ost, hálf-frosið kjöt o.fl.).
Gagnleg ráð
7. Mjúkur og miðlungsharður ostur
getur smurst út eða rúllast upp á
rifdiskinn. Til að forðast þetta skal
aðeins rífa vel kældan ost.
8. Stundum geta
mjó matvæli, svo
sem gulrætur og
sellerí fallið um
koll í ílagsopinu og
sneiðarnar orðið
ófjafnar. Til að
forðast þetta er
best að skera matvælin í marga bita
og fylla vel í ílagsopið. Til að vinna
lítil eða mjó matvæli er litli troðarinn
í tvískipta troðaranum sérlega
handhægur.
9. Þegar unnið er deig í kökur eða
brauð skal fyrst nota fjölnota blaðið
til að hræra feiti og sykur. Bætið
þurrefnunum í síðast. Setjið hnetur
og ávexti ofan á hveitiblönduna til að
forðast að það verði of mikið hakkað.
Vinnið hnetur og ávexti með því að
styðja stutt í einu á „Pulse" hnappinn
þar til það hefur blandast öðrum
efnum. Gætið þess að ofvinna ekki.
10. Þegar rifin eða sneidd matvæli safnast
fyrir í annarri hlið skálarinnar er
best að stöðva vélina og dreifa úr
matvælunum með sleikju.
11. Þegar unnin matvæli ná upp undir rif-
eða sneiðdiskinn skal tæma skálina.
12. Fáeinir stærri matvælabitar geta setið
eftir ofan á diskinum eftir sneiðingu
eða rif. Þá má skera í höndum og
bæta við blönduna.
13. Skipuleggið vinnsluna til að minnka
uppþvott. Vinnið þurr og þétt efni á
undan vökva.
14. Til að hreinsa matvælin auðveldlega
af fjölnota blaðinu skal aðeins tæma
vinnsluskálina, setja lokið aftur á og
setja vélina af stað í 1 til 2 sekúndur,
þá losna afgangar af blaðinu.
20

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Diese Anleitung auch für:

Artisan 5kfpm771Artisan 5kfpm775

Inhaltsverzeichnis