Herunterladen Diese Seite drucken

Bosch BPC3200 Originalbetriebsanleitung Seite 57

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 9
Notkun
Búnaðurinn tekinn í notkun
Hleðslutækið tengt við rafmagn (sjá mynd A)
Gæta skal að veituspennunni! Spenna aflgjafans verður
u
að vera í samræmi við það sem kemur fram á
upplýsingaplötu hleðslutækisins. Hleðslutæki sem merkt
eru með 230 V er einnig hægt að nota með 220 V.
Stingdu klónni (3) á rafmagnssnúrunni í innstunguna (2) á
hleðslutækinu.
Stingdu rafmagnssnúrunni (fer eftir landi) í samband við
rafmagn.
Hleðsla á rafhlöðu sem tekin hefur verið úr rafhjóli
(sjá myndir B−F)
Slökktu á rafhlöðunni og taktu hana úr festingunni á
rafhjólinu. Hvað þetta varðar skal lesa notendahandbók
rafhlöðunnar og fara eftir því sem þar kemur fram.
Ekki má setja rafhlöðu rafhjólsins niður á óhreina fleti.
u
Sérstaklega skal forðast að óhreinindi á borð við sand eða
mold komist inn í hleðslutengið og á tengi.
Stingdu hleðslukló (5) hleðslutækisins í hleðslutengið (6) á
rafhlöðunni.
Rafhlaða hlaðin á rafhjóli (sjá myndir G–I)
Slökktu á rafhlöðunni. Hreinsaðu lokið yfir hleðslutenginu
(14). Sérstaklega skal forðast að óhreinindi á borð við sand
eða mold komist inn í hleðslutengið og á tengi. Taktu lokið frá
hleðslutenginu (14) og stingdu hleðsluklónni (5) í
hleðslutengið (6).
Hleðslutækið hitnar meðan á hleðslu stendur og af því
u
getur stafað eldhætta. Þegar rafhlöður eru hlaðnar á
rafhjólinu verða þær að vera þurrar og á eldtraustum
stað. Ef það er ekki hægt skal taka rafhlöðuna úr
festingunni á rafhjólinu og hlaða hana á hentugri stað.
Hvað þetta varðar skal lesa notendahandbók
rafhlöðunnar og fara eftir því sem þar kemur fram.
Villur – orsakir og úrræði
Orsök
Rafhlaðan er í ólagi
Rafhlaðan er of heit eða of köld
Hleðslutækið hleður ekki.
Bosch eBike Systems
Hleðsla
Byrjað er að hlaða um leið og búið er að tengja hleðslutækið
við rafmagn og við rafhlöðuna eða hleðslutengið á rafhjólinu.
Athugaðu: Ekki er hægt að hlaða nema að hitastig
rafhlöðunnar sé innan leyfilegra marka fyrir hleðslu.
Athugaðu: Slökkt er á drifeiningunni meðan á hleðslu
stendur.
Hægt er að hlaða rafhlöðu rafhjólsins bæði með og án
hjólatölvu. Ef hjólatölva er ekki fyrir hendi er hægt að fylgjast
með hleðslunni á hleðsluvísinum (7) og mögulega einnig á
stjórnbúnaðinum.
Þegar hjólatölva er tengd birtist samsvarandi tilkynning á
skjánum.
Hleðslustaðan er gefin til kynna með hleðsluvísinum (7) á
rafhlöðunni, á stjórnbúnaðinum og á hjólatölvunni ef hún er
fyrir hendi.
Meðan á hleðslu stendur loga ljósdíóður hleðsluvísisins (7) á
rafhlöðunni. Hver ljósdíóða sem logar samsvarar u.þ.b. 20%
hleðslu. Blikkandi ljósdíóða gefur til kynna að verið er að
hlaða næstu 20%.
Þegar rafhlaðan er fullhlaðin slokknar á ljósdíóðunum og
slökkt er á hjólatölvunni. Hleðslunni er lokið. Hægt er að ýta á
hnappinn til að kveikja/slökkva (8) á rafhlöðunni til að sýna
hleðslustöðuna í 5 sekúndur.
Taka skal hleðslutækið úr sambandi við rafmagn og taka
rafhlöðuna úr sambandi við hleðslutækið.
Slökkt er sjálfkrafa á rafhlöðunni þegar hún er tekin úr
sambandi við hleðslutækið.
Athugaðu: Þegar búið er að hlaða rafhlöðuna á rafhjólinu
skal loka hleðslutenginu (6) vandlega með lokinu (14) til að
koma í veg fyrir að óhreinindi eða vatn geti borist inn í það.
Ef hleðslutækið er ekki tekið úr sambandi við rafhlöðuna að
lokinni hleðslu kveikir það aftur á sér eftir nokkrar
klukkustundir, athugar hleðsluna á rafhlöðunni og byrjar
aftur að hlaða ef þess þarf.
Úrræði
Tvær ljósdíóður blikka á rafhlöðunni.
Snúðu þér til viðurkennds söluaðila reiðhjóla.
Þrjár ljósdíóður blikka á rafhlöðunni.
Taktu rafhlöðuna úr sambandi við hleðslutækið þar til
hitastigið er innan leyfilegra marka fyrir hleðslu.
Ekki tengja rafhlöðuna aftur við hleðslutækið fyrr en hitastig
hennar er aftur innan leyfilegra marka fyrir hleðslu.
Engin ljósdíóða blikkar (allt eftir hleðslustöðu
rafhlöðunnar loga ein eða fleiri ljósdíóður).
Snúðu þér til viðurkennds söluaðila reiðhjóla.
Íslenska – 3
0 275 007 3CX | (27.02.2023)

Werbung

loading

Diese Anleitung auch für:

Bpc3400Bpc3403