Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Emmaljunga NXT90 ERGO Bedienungsanleitung Seite 265

Inhaltsverzeichnis

Werbung

Hámarksþyngd fyrir fótaskemilinn er 3 kg.
• Öll þyngd sem er sett á vagninn (t.d. á handfangið, bakið eða
á hliðarnar) hefur áhrif á stöðugleika hans. Notið ekki fylgihluti
sem framleiðandi viðurkennir ekki.
• Ekki má bæta dýnum í vagninn. Notið eingöngu upprunalegu
Emmaljunga-dýnuna sem fylgir með vörunni.
• Hlutir í innkaupakörfunni mega ekki standa út fyrir hliðarnar því
þá geta þeir flækst í hjólunum.
• EKKI má nota kerrustykkið eða vagnstykkið sem bílstól.
• Ef bílstólar eru notaðir á grindinni koma þeir ekki í staðinn fyrir
burðarrúm eða rúm. Ef barnið þarf að sofa skal leggja það á
viðeigandi stað eins og burðarrúm eða rúm.
• Aldrei skal draga vagninn/kerruna með snúningshjólin að
framan fyrir aftan sig. Vagninn/kerran getur snúist af sjálfu sér,
sem getur stefnt öryggi í hættu ef ekki er sýnd aðgát.
• Alls ekki má fara með vagninn upp eða niður tröppur. Notið
alltaf lyftur til að fara á milli hæða. Ef ekki verður hjá því komist
að fara upp eða niður stiga skal gæta þess að taka barnið úr
vagninum og sjá til þess að ekkert barn sé í vagninum eða
nálægt honum á meðan.
• Alls ekki má fara með vagninn í rúllustiga.
• Ekki má nota vöruna í miklum vindi eða þrumuveðri.
• Athugið að á lestar- eða neðanjarðarlestarstöðvum geta
átt sér stað miklar og skyndilegar breytingar á loftþrýstingi
(vegna vinds eða sogs). Látið vagninn aldrei standa nálægt
lestarteinum nema að hafa báðar hendur á handfanginu þar
sem bremsan ein og sér nægir hugsanlega ekki til að halda
vagninum á sínum stað.
• Farið ekki yfir lestarteina með barnið í vagninum. Hætta er á að
hjólin festist!
• Við notkun í almenningssamgöngum (strætisvögnum, lestum
o.s.frv.) nægir ekki að nota eingöngu bremsuna á vagninum.
Vagninn getur orðið fyrir álagi (við skyndilega hemlun, beygjur
og ójöfnur á vegi, hraðaaukningu o.s.frv.) sem hann hefur ekki
verið prófaður fyrir samkvæmt gildandi staðli EN1888. Fylgið í
hvívetna þeim tilmælum og leiðbeiningum um örugga festingu
barnavagna sem rekstraraðilum í almenningssamgöngum er
skylt að láta í té.
• Ekki skal nota þessa vöru sem lækningatæki. Varan er hönnuð
og smíðuð í samræmi við staðalinn EN1888/EN1466. Ef barnið
hefur sérstakar læknisfræðilegar þarfir í tengslum við flutning
skal ráðfæra sig við lækni.
NXT SELECT V1.2
SE
EN
CZ
DE
DK
EE
ES
FI
NO
SVK
BG
FR
GR
HR
HU
IS
IT
LV
LT
ML
NL
PL
RO
PT
RS
RU
SL
TR
265

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Diese Anleitung auch für:

Nxt90 flatNxt90 selectNxt60 ergoNxt60 flatNxt60 select

Inhaltsverzeichnis