Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Hallde RG-350 Bedienungsanleitung Seite 30

Gemüseschneider
Vorschau ausblenden Andere Handbücher für RG-350:
Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 9
framan, rangsælis, og fjarlægið sjálfmata-
rann. Leysið læsihnappinn af matarahólknum,
rangsælis, og fjarlægið hólkinn.
SKURÐARVERKFÆRUNUM
KOMIÐ FYRIR
Ef sjálfmatarinn er í notkun skal lyfta öxlinum
upp úr festingu hans aftan á vélinni.
Snúið læsihnappnum rangsælis og hallið
matarahólknum fyrir handstýrða matarann/
sjálfmatarann til hægri.
Setjið frárásarskífuna á öxulinn, snúið henni og
þrýstið henni niður svo hún festist á sínum stað.
Setjið valið skurðarverkfæri á öxulinn og snúið
því þar til það festist á sínum stað.
Skorið í teninga: komið teningagrind fyrir
þannig að egg hnífanna vísi upp, og skoran á
hlið teningagrindarinnar passi inn í stilligrópina
á vélinni. Setjið svo skurðarskífuna á öxulinn
þannig að hún festist á sínum stað.
Þegar þrýstimatarinn er notaður skal koma
kjarnahreinsibúnaðinum fyrir með því að snúa
honum rangsælis með skrúflykli á miðjuöxul
skurðarverkfærisins.
Þegar sjálfmatarinn er notaður skal koma
hrærislífinni fyrir með því að snúa henni
rangsælis með skrúflykli á miðjuöxul skurðar-
verkfærisins.
Setjið niður matarahólkinn fyrir handstýrða
matarann/sjálfmatarann og snúið læsihnappi
hans réttsælis í læsta stöðu.
SKURÐARVERKFÆRI
FJARLÆGÐ
Lyftið handfangi þrýstimatarans og snúið því
út til vinstri, eða lyftið upp öxli sjálfmatarans
aftan á vélinni.
Snúið læsihnappnum rangsælis og lyftið
handstýrða þrýstimataranum/sjálfmataranum
til hægri.
Fjarlægið kjarnahreinsibúnaðinn eða hrærislí-
fina með því að snúa þeim rangsælis með
skrúflykli.
Fjarlægið skurðarverkfærið/verkfærin og
frárásarskífuna.
ÞRIF
FYRIR ÞRIF: Slökkvið ávallt á vélinni og takið
hana úr sambandi. Ef vélin er ekki með kló
skuluð þið slökkva á straumrofa. Fjarlægið alla
hluta sem má fjarlægja og á að þrífa.
ÞRIF Í UPPÞVOTTAVÉL: Alla hluta úr plasti má
setja í uppþvottavél. ATHUGIÐ! Þvoið aldrei
málmhluta í uppþvottavél nema þeir séu gerðir
úr ryðfríu stáli. Hlutar úr áli dökkna ef þeir eru
þvegnir í uppþvottavél. Það getur verið erfitt að
hreinsa og getur litað út frá sér.
HANDÞVOTTUR: Notið ávallt uppþvottalög.
HREINSIEFNI: Notið burstann sem fylgdi
vélinni eða annan svipaðan til að þrífa
30
matarsvæðin. Hægt er að þrífa hníföxulinn
í miðri vélinni með litlum flöskubursta. Notið
rakan klút til að þrífa aðra hluta vélarinnar.
SÓTTHREINSUN: Notið ísóprópýlalkóhól
(65-70%). Ísóprópýlalkóhól er afar eldfimt svo
farið varlega þegar það er notað.
VIÐVÖRUN:
• Hellið hvorki né úðið vatni á hliðar vélarinnar.
• Notið ekki sjóðandi eða heitt vatn.
• Notið ekki natríumhýpóklórít (klór) eða önnur
efni sem innihalda það.
• Notið aldrei beitt verkfæri við þrif eða önnur
verkfæri sem ekki eru ætluð fyrir þrif.
• Notið ekki fægiefni.
FORÐIST: Notið ekki þvottasvampa með
ræstipúðum (t.d. Scotch-Brite™) nema það sé
algjörlega nauðsynlegt. Það ýfir yfirborðsfleti
svo þeir hrinda síður vatni frá sér.
RÁÐ FYRIR UMHIRÐU:
• Þrífið vélina strax eftir notkun.
• Þurrkið vélina strax eftir þrif til að forðast
oxun og upplitun á yfirborðsflötum.
UPPLÝSINGAR: Ef vélin er látin vera rök í
lengri tíma koma blettir á hana. Blettirnir eru
skaðlausir en hafa slæm áhrif á útlit vélarinnar.
Grænmeti og ávextir innihalda sýru. Það hefur
áhrif á málminn, eftir því hvaða vörur eru unnar,
eftir mismunandi langan tíma. Því er mikilvægt
að þrífa vélina strax eftir vinnslu á söltum og
súrum vörum.
BILANALEIT
Til að koma í veg fyrir tjón á vélinni er RG-350
útbúin hitastýrðri mótorvörn sem slekkur
sjálfkrafa á vélinni ef hitastig hennar verður of
hátt. Hitastýrða mótorvörnin er með sjálfvirkri
endurstillingu, sem þýðir að hægt er að gang-
setja vélina aftur þegar hún hefur kólnað, sem
tekur yfirleitt 10-30 mínútur.
BILUN: Vélin fer ekki í gang eða stöðvast
meðan hún er í gangi og ekki er hægt að
endurræsa hana.
LAUSN: Gangið úr skugga um að klóin sé
rétt í innstungunni eða kveikt á aðalrofanum.
Gangið úr skugga um að matarahólkurinn fyrir
handstýrða matarann eða sjálfmatarann sé
læstur í réttri stöðu. Færið þrýstiplötuna niður
í hólkinn fyrir handstýrða matarann. Gangið úr
skugga um að öryggi í töfluskápnum séu í lagi
og að þau séu af réttri gerð. Bíðið í nokkrar
mínútur og reynið svo að gangsetja vélina
aftur. Fari vélin enn ekki í gang skal fá löggiltan
rafvirkja eða fagmann til að skoða hana.
BILUN: Lítil vinnslugeta eða ófullnægjandi
árangur.
LAUSN: Gangið úr skugga um að rétt skurðar-
verkfæri eða rétt samsetning af skurðarverk-
færum sé notuð. Komið fyrir kjarnahreinsibú-
naðinum (handstýrður matari) eða hrærislífinni
(sjálfmatari). Gangið úr skugga um að hnífarnir
og skurðarskífurnar séu heilar og bíti vel.
Þrýstið matnum niður af minna afli.
BILUN: Ekki tekst að fjarlægja skurðarverkfæri.
LAUSN: Notið ávallt frárásarskífuna. Notið
þykkan leðurhanska eða öðruvísi hanska sem
hnífar skurðarverkfærisins skera ekki í gegnum
og losið skurðarverkfærið með því að snúa
því réttsælis.
BILUN: Ekki tekst að fjarlægja kjarnahrein-
sibúnað eða hrærislíf.
LAUSN: Notið skrúflykil til að losa kjarnahrein-
sibúnaðinn eða hrærislífina með því að snúa
honum réttsælis.
TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR
UM HALLDE RG - 350
VÉL: Mótor: 0,75 kW, 230 V, einfasa, 50 Hz,
eða 400 V, þriggja fasa, 50 Hz, með hitastýrðri
mótorvörn. Aflyfirfærsla: gírar. Öryggiskerfi:
Fjórir öryggisrofar: Varnarflokkur: IP44.
Rafmagnsinnstunga: Jarðtengd, einfasa, 10
A, eða þriggja fasa, 16 A. Öryggi í töfluskáp á
staðnum. 10 A, treg. Hljóðvist LpA (EN31201):
73 dBA.
VERKFÆRI: Þvermál: 215 mm. Hraði: 360
sn./mín.
NETTÓÞYNGD: Vélarhús: 26 kíló. Handstýrður
þrýstimatari í heild: 6 kíló. Sjálfmatari: 7.5 kíló.
Skurðarverkfæri: U.þ.b. 1 kíló að meðaltali.
STAÐLAR: NSF-STAÐALL 8, sjá samræmi-
syfirlýsingu.
HALLDE • User Instructions

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis