ÍSLENSKA
Frystihólf
Ráð við frystingu á ferskum matvælum
•
Það kemur fram á merkiplötunni hve mikið af
ferskum matvælum má frysta á sólarhring.
•
Við gangsetningu eftir langt hlé skal láta
heimilistækið vera í gangi a.m.k 2 klst. á kaldari
stillingu áður en matvæli eru látin í hólfið.
•
Ekki skal láta fersk, ófrosin matvæli snerta mat
sem þegar er frosinn til að komast hjá að hitinn
hækki í þeim síðarnefnda.
•
Pakkið inn matvælunum til að verja þau fyrir vatni,
raka eða þéttingu. Það kemur í veg fyrir að lykt
berist um frystinn jafnframt því að tryggja betur
gæði frystra matvæla.
•
Magurt fæði geymist betur og lengur en feitt fæði.
Salt dregur úr geymsluþoli fæðu.
•
Látið aldrei heit matvæli í frystinn. Með því að kæla
heit matvæli áður en þau eru fryst sparast orka og
heimilistækið endist lengur.
•
Ekki frysta aftur hálfþiðin matvæli.
•
Athugasemd: Látið aldrei mat eða drykk í flöskum
inn í frystihólfið.
•
Til að ná sem bestum árangri skaltu skilja nóg
pláss eftir í frystihólfinu til að loft geti streymt um
umbúðirnar. Einnig skal skilja eftir nægilegt rými
framan við svo að hægt sé loka dyrunum vel.
Frystihólf
Þetta heimilistæki er kælir með
stjörnufrystihólfi. Pökkuð fryst matvæli má geyma í
þann tíma sem gefinn er upp á umbúðunum. Þegar
búið er að affrysta matvæli skal nota þau innan
sólarhrings.
Dagleg notkun
Eftirfarandi ráð eru til að minnka orkunotkun
heimilistækis:
•
Setjið upp heimilistækið í þurru, vel loftræstu
herbergi langt frá hvers kyns hitagjöfum (t.d.
ofnum, pottum o.s.frv.) og á stað sem sólin skín
ekki beint á. Notið einangrunarplötu eftir þörfum.
•
Fylgið uppsetningarfyrirmælum til að tryggja
næga loftræstingu.
•
Ónóg loftræsting bak við tækið eykur orkunotkun
og dregur úr kælinýtni.
•
Umhverfishiti, opnunartíðni sem og staðsetning
heimilistækisins geta haft áhrif á hitastig inni í
heimilistækinu. Hitastillingin ætti að miðast við
þessa þætti.
•
Látið heit matvæli og drykki kólna áður en þau eru
sett í heimilistækið.
•
Ekki láta matvæli hindra viftuna (ef hún er til
staðar).
•
Þegar matvæli eru látin í kæliskápinn eða tekin út
þarf að tryggja að dyrnar séu vel lokaðar, einkum á
frystinum.
Ráð um geymslu á frystum matvælum
Til þess að þetta heimilistæki starfi sem best skal:
•
Ganga úr skugga um að fryst matvæli sem keypt
eru út úr búð hafi verið geymd við rétt skilyrði hjá
smásöluaðila.
•
Tryggið að frystivara sé flutt úr búðinni og í
frystinn á sem skemmstum tíma.
•
Ekki opna dyrnar oft eða skilja eftir opnar lengur
en þörf er á.
•
Eftir afþiðnun skemmist matur fljótt og ekki er
hægt að frysta hann aftur.
•
Ekki geyma matvöru lengur en framleiðandi
vörunnar mælir með.
Afþíðing
Hægt er að þíða djúpfrysta fæðu í kæliskápnum eða
við herbergishita áður en hún er notuð en það fer
eftir því hve mikill tími er til stefnu.
Það er jafnvel hægt að elda litla bita þótt þeir komi
beint úr frystinum, en þá tekur það lengri tíma.
VIÐVÖRUN!
Ef afþíðing fer óvart af stað,
til dæmis vegna rafmagnsleysis lengur en
nemur hitahækkunartíma sem sést á merkiplötu
heimilistækisins, þarf að neyta afþíddrar fæðu sem
fyrst eða sjóða strax og endurfrysta (eftir suðu).
•
Lágmarkið opnun á hólfum.
•
Við þíðingu matvæla skal láta þau í kæliskápinn.
Lága hitastigið á frosnum matvælum kælir niður
matvælin í ísskápnum.
•
Fyrirkomulag á hillum í kæliskáp hefur engin áhrif
á orkunýtni. Matvæli skal setja þannig á hillur
að það tryggi næga loftun (matvæli eiga ekki að
snertast og halda skal fjarlægð á milli matvæla og
bakhliðar).
•
Skipta skal sem fyrst um skemmdar þéttingar.
456