skal tryggja að sagkeðjan snerti enga hluti. Skortur á
athygli í stutta stund á meðan keðjusögin er í gangi getur
valdið því að föt eða líkamshlutar flækist í sagkeðjunni.
•
Haldið keðjusöginni ávallt með hægri hendi á
afturhandfanginu og vinstri hendi á
framhandfanginu. Áhætta á líkamstjóni eykst ef
keðjusöginni er haldið með öfugri handstöðu og má
aldrei gera slíkt.
•
Haldið aðeins um einangruð handföng
keðjusagarinnar því sagkeðjan kann að komast í
snertingu við dulda víra. Ef sagkeðja snertir
„lifandi" vír geta málmhlutar keðjusagarinnar „leitt
rafmagn" og notandinn fengið raflost.
•
Notið augnhlífar. Mælt er með frekari hlífðarbúnaði
fyrir eyru, höfuð, hendur, fótleggi og fætur.
Fullnægjandi hlífðarbúnaður dregur úr líkamstjóni af
völdum aðskotahluta á lofti eða óviljandi snertingar á
sagkeðjunni.
•
Notið ekki keðjusögina í tré, í stiga, á þaktoppi eða
óstöðugri undirstöðu. Ef keðjusögin er notuð þannig
getur það leitt til alvarlegs líkamstjóns.
•
Tryggið ávallt viðeigandi fótastöðu og notið aðeins
keðjusögina á föstu, traustu og sléttu yfirborði. Ef
notandinn rennur til eða er á óstöðugu yfirborði getur
það leitt til missis á jafnvægi eða stjórn á keðjusöginni.
•
Þegar grein undir spennu er söguð skal hafa í huga að
hún getur skotist til baka. Þegar losnar um spennu í
viðartrefjunum getur grein undir spennu slegist í
notandann og/eða keðjusögina svo notandinn missi stjórn
á henni.
•
Sýnið ýtrustu varúð við klippingu á kjarri og
ungtrjám. Grannt efnið getur fests í sagkeðjunni og
slegist í átt að þér eða komið þér úr jafnvægi.
•
Haldið á keðjusöginni með framhandfanginu og frá
líkamanum þegar labbað er um með hana og gætið
þess að slökkt sé á henni. Þegar keðjusögin er flutt eða
geymd verður alltaf að setja beinistangarhlífina á.
Viðeigandi meðhöndlun á keðjusöginni dregur úr líkum
þess að snerta óvart sagkeðjuna.
•
Fylgið fyrirmælum um smurningu, keðjustrekkingu
og skipti um stöng og keðju. Keðja sem hefur ekki verið
strekkt eða smurð með réttum hætti getur annaðhvort
slitnað eða aukið líkur á bakslagi.
•
Aðeins til að saga við. Notið ekki keðjusögina í öðrum
en ætluðum tilgangi. Til dæmis: notið keðjusögina
ekki til að saga málm, plast, múrverk eða
byggingarefni sem ekki er úr við. Notkun á
keðjusöginni fyrir önnur verk en hún er ætluð fyrir, getur
leitt til hættulegra aðstæðna.
•
Reynið ekki að fella tré fyrr en öll hætta liggur fyrir
og hvernig koma megi í veg fyrir þær. Notandinn eða
viðstaddir geta orðið fyrir alvarlegum meiðslum þegar
tré er fellt.
•
Fylgið öllum fyrirmælum við hreinsun á flæktu efni,
geymslu eða viðgerðir á keðjusöginni. Gangið úr
skugga um að slökkt sé á henni og að rafhlaðan hafi
verið tekin úr. Ef keðjusögin fer óvænt í gang við
Íslenska
hreinsun á flæktu efni eða viðgerðir getur það leitt til
alvarlegs líkamstjóns.
4
KOMIÐ Í VEG FYRIR
BAKSLAG
Bakslög geta átt sér stað þegar nef eða oddur
beinistangarinnar snertir hlut eða þegar viðurinn þrengist og
klemmir sagkeðjuna í sárinu.
Ef oddurinn lendir á hlutum getur það stundum valdið
skyndilegu bakslagi, rykkt beinistönginni upp og aftur á bak í
átt að notandanum.
Ef sagkeðjan klemmist við efsta hluta beinistangarinnar getur
það ýtt beinistönginni skyndilega afturábak og í átt að
notandanum.
Þú getur misst stjórn á söginni í báðum þessum tilvikum og
valdið alvarlegu líkamstjóni. Treystið ekki eingöngu á
innbyggðan öryggisbúnað keðjusagarinnar. Sem notandi
keðjusagarinnar ættir þú að grípa til víðtækra ráðstafana til að
koma í veg fyrir slys eða meiðsli við vinnu þína.
Bakslag á sér stað við misnotkun og/eða ranga notkun eða
aðstæður og er hægt að koma í veg fyrir það með viðeigandi
varúðarráðstöfunum eins og hér segir:
•
Viðhaldið góðu gripi með þumalfingur og fingur um
handföng keðjusagarinnar, með báðar hendur á
söginni og líkams- og armstöðu þannig að þú standist
alla bakslagskrafta.
Notandinn getur haft stjórn á bakslagskröftum ef hann
grípur til viðeigandi varúðarráðstafana. Sleppið ekki
keðjusöginni.
•
Hvorki má teygja sig með söginni né saga fyrir ofan
axlarhæð. Það kemur í veg fyrir að oddurinn komist
óvænt í snertingu við hluti og tryggir betri stjórn á
keðjusöginni í óvæntum aðstæðum.
•
Skiptið stöngum og keðjum aðeins út fyrir stangir og
keðjur sem framleiðandinn hefur mælt með. Ef
stöngum og keðjum er skipt út fyrir ranga varahluti getur
það valdið bilun og/eða bakslagi hjá keðjusöginni.
•
Fylgið fyrirmælum framleiðanda um hvernig eigi að
brýna sagkeðjuna. Ef hæð dýptarmælisins er minnkuð
getur það einnig aukið bakslagið.
5
TÁKN Á VÖRUNNI
Sum eftirfarandi tákna kunna að vera notuð á vörunni.
Kynnið ykkur þau og lærið þýðingu þeirra. Viðeigandi túlkun
táknanna tryggir að varan sé notað með betri og öruggari
hætti.
Tákn
363
Útskýring
Jafnstraumur - gerð eða einkenni
straums.
Varúðarráðstafanir sem hafa með ör-
yggi þitt að gera.
IS