Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Mikilvægar Upplýsingar - Emmaljunga NXT90 Classic Bedienungsanleitung

Inhaltsverzeichnis

Werbung

Mikilvægar upplýsingar
VIÐVÖRUN
• Ef einhver hluti þessa leiðarvísis er óljós eða þarfnast frekari skýringa skal hafa
samband við viðurkenndan söluaðila Emmaljunga sem veitir þá frekari aðstoð.
• Ekki má breyta þessari vöru með neinum hætti þar sem það getur stefnt öryggi
barnsins í hættu. Framleiðandinn ber EKKI ábyrgð á breytingum sem gerðar
eru á vörunni.
• Ekki má setja hluti á skerminn. Notið vagninn aldrei án skermsins.
• Ekki má aka með önnur börn eða poka á þessari kerru.
• Vagninn er eingöngu ætlaður til að flytja barnið á milli staða. Alls ekki má nota
vagninn sem rúm fyrir barnið.
• Ekki má standa eða sitja á fótaskemlinum. Aðeins má nota fótaskemilinn sem
stoð fyrir fótleggi og fætur eins (1) barns. Önnur notkun getur haft alvarleg slys
í för með sér. Hámarksþyngd fyrir fótaskemilinn er 3 kg.
• Öll þyngd sem er sett á vagninn (t.d. á handfangið, bakið eða á hliðarnar) he-
fur áhrif á stöðugleika hans. Notið ekki fylgihluti sem framleiðandi viðurkennir
ekki.
• Ekki má bæta dýnum í vagninn. Notið eingöngu upprunalegu Emmaljunga-
dýnuna sem fylgir með vörunni.
• Hlutir í innkaupakörfunni mega ekki standa út fyrir hliðarnar því þá geta þeir
flækst í hjólunum.
• EKKI má nota kerrustykkið eða vagnstykkið sem bílstól.
• Ef bílstólar eru notaðir á grindinni koma þeir ekki í staðinn fyrir burðarrúm
eða rúm. Ef barnið þarf að sofa skal leggja það á viðeigandi stað eins og
burðarrúm eða rúm.
• Aldrei skal draga vagninn/kerruna með snúningshjólin að framan fyrir aftan sig.
Vagninn/kerran getur snúist af sjálfu sér, sem getur stefnt öryggi í hættu ef ekki
er sýnd aðgát.
• Alls ekki má fara með vagninn upp eða niður tröppur. Notið alltaf lyftur til að
fara á milli hæða. Ef ekki verður hjá því komist að fara upp eða niður stiga skal
gæta þess að taka barnið úr vagninum og sjá til þess að ekkert barn sé í vagni-
num eða nálægt honum á meðan.
• Alls ekki má fara með vagninn í rúllustiga.
• Ekki má nota vöruna í miklum vindi eða þrumuveðri.
• Athugið að á lestar- eða neðanjarðarlestarstöðvum geta átt sér stað miklar og
skyndilegar breytingar á loftþrýstingi (vegna vinds eða sogs). Látið vagninn
aldrei standa nálægt lestarteinum nema að hafa báðar hendur á handfanginu
þar sem bremsan ein og sér nægir hugsanlega ekki til að halda vagninum á
sínum stað.
• Farið ekki yfir lestarteina með barnið í vagninum. Hætta er á að hjólin festist!
• Við notkun í almenningssamgöngum (strætisvögnum, lestum o.s.frv.) nægir
ekki að nota eingöngu bremsuna á vagninum. Vagninn getur orðið fyrir álagi
(við skyndilega hemlun, beygjur og ójöfnur á vegi, hraðaaukningu o.s.frv.) sem
hann hefur ekki verið prófaður fyrir samkvæmt gildandi staðli EN1888. Fylgið
í hvívetna þeim tilmælum og leiðbeiningum um örugga festingu barnavagna
sem rekstraraðilum í almenningssamgöngum er skylt að láta í té.
• Ekki skal nota þessa vöru sem lækningatæki. Varan er hönnuð og smíðuð í
samræmi við staðalinn EN1888/EN1466. Ef barnið hefur sérstakar læknisfræði-
legar þarfir í tengslum við flutning skal ráðfæra sig við lækni.
NXT90 Classic v 1.0
IS
235

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis