Öryggi
Um þetta skjal
Þetta skjal er ætlað fyrir rekstraraðila
eftirfarandi Geberit handlaugatækja:
• Geberit handlaugatæki Piave, standandi
og veggfest
• Geberit Brenta handlaugatæki, standandi
og veggfest
Rétt notkun
Geberit handlaugatæki Piave og Brenta
eru ætluð fyrir neysluvatnslagnir. Öll
önnur notkun telst vera röng. Geberit
tekur enga ábyrgð á afleiðingum rangrar
notkunar.
Viðvaranir og tákn í þessum
leiðbeiningum
Viðvaranir og tákn
ATHUGIÐ
Gefur til kynna hættu sem getur leitt til
tjóns ef ekki er komið í veg fyrir hana.
Bendir á mikilvægar upplýsingar.
2011761803 © 09-2016
967.455.00.0 (00)
Öryggisupplýsingar
• Rekstraraðilar mega aðeins annast
viðhald, umhirðu og notkun sjálfir að því
marki sem lýst er í þessum
notkunarleiðbeiningum.
• Í Geberit handlaugatækjum sem tengd
eru við rafmagn eru íhlutir sem straumur
er á. Ef rafmagnssnúran er skemmd
verður að láta fagaðila skipta um hana.
• Ekki má reyna að gera við Geberit
handlaugatæki á eigin spýtur.
• Ekki skal breyta vörunni eða bæta neinu
við hana.
• Fagaðilar skulu annast allar viðgerðir og
má aðeins nota til þess varahluti og
aukabúnað frá framleiðanda.
IS
103