Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken
Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 4
Íslenska
MIKILVÆGT:
LESIÐ VANDLEGA OG GEYMIÐ
Fylgið vandlega öllum viðvörunum og
samsetningarleiðbeiningum.
Notið hengirúmið EKKI fyrr en uppsetningu er lokið
að fullu.
VARÚÐ!
Hámarksburðarþol er 120 kg/265 lb.
Settu hengirúmið upp þannig að lægsti punkturinn
sé ekki meira en 60 cm frá jörðu.
Settu hengirúmið EKKI upp yfir malbiki, steypu,
þjappaðri mold eða öðru hörðu undirlagi. Fall á
hart undirlag getur valdið alvarlegum meiðslum.
Athugaðu fyrir HVERJA NOTKUN hvort slit sjáist á
hengirúmi, köðlum eða festingum.
Börn ættu ekki að nota hengirúmið án eftirlits
fullorðinna.
Brýndu fyrir börnum að ganga aldrei eða leika sér
nálægt hengirúminu þegar það er á hreyfingu.
EKKI stökkva úr hengirúminu á meðan það er á
hreyfingu.
EKKI nota hengirúmið ef einhver hluti þess er
bilaður, rifinn eða týndur. Ekki skipta út hlutum í
hengirúminu. Athugaðu hjá IKEA hvort varahlutir
séu fáanlegir.
Umhirðuleiðbeiningar
Þrif: Vöruna þarf að handþvo með heitu vatni (40°C).
Forðist að bleyta málmkrókana. Setjið hengirúmið
og böndin í stóra fötu eða ílát sem fyllt er með heitu
vatni. Setjið milt hreinsiefni út í vatnið og notið mjúkan
bursta til að nudda úr bletti. Skolið vel. Látið þorna á
flötu undirlagi.
Geymsla: Þegar hengirúmið er ekki í reglulegri
notkun ætti að geyma það á svölum og þurrum stað
innandyra. Þvoið og þurrkið hengirúmið vandlega
áður en það er sett í geymslu.
Viðbótaviðvaranir/leiðbeiningar
Viðbótaviðvaranir/leiðbeiningar fyrir notkun á standi
fyrir hengirúm
Settu standinn saman og festu HAMNÖN hengirúmið
við hann eins og samsetningaleiðbeiningarnar segja
til um.
8
VARÚÐ!
Komið samansettu statífinu fyrir á flötu og jöfnu
yfirborði sem er í öruggri fjarlægð frá öðrum
hlutum og hindrunum.
Farið reglulega yfir festingar og herðið þær eftir
þörfum.
Rólið EKKI of harkalega í hengirúminu þar sem það
getur gert það óstöðugt.
Notið hengirúmið EKKI ef einhverjir hlutar þess eru
týndir eða hafa losnað. Notið EKKI utanaðkomandi
varahluti. Varahluti má nálgast í IKEA versluninni.

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis